Scienceblogs er heimasíða sem ég skoða reglulega. Þetta er safn bloggsíðna um ýmiss konar fræði. Þar hefur ekki verið mikið um bókasafnsfræði, en þó er einn bókasafnsfræðingur þar. Confessions of a Science Librarian er blogg bókasafnsfræðingsins John Dupuis, en hann er einnig með gráðu í tölvunarfræði. Ég mæli með þessu bloggi fyrir þá sem vilja fylgjast með, en hann er nokkuð duglegur að blogga. Hversu oft segi ég „blogg“ í þesssari bloggfærslu?
Sarpur fyrir nóvember, 2010
Bókasafnsfræðingur á Scienceblogs
Posted in Bókasafns- og upplýsingafræði, Internet with tags blogg, Scienceblogs on 26.11.2010 by erlendurHeimasíða
Posted in Bókasafns- og upplýsingafræði, Internet, Upplýsingalæsi with tags CSS, Notepad++, TextWrangler, XHTML on 19.11.2010 by erlendurÉg á víst að búa til heimasíðu fyrir internetkúrsinn sem ég er í. Hún þarf ekki að vera of flókin en þarf að uppfylla nokkur skilyrði (hverjum hefði dottið það í hug?). Stefnan hjá mér er að útbúa tenglasíðu fyrir upplýsingalæsi. Ég var þó í miklum vandræðum með að ákveða hvort ég ætti að hafa heimspekileg efni eða um upplýsingalæsi, en ég er með BA í heimspeki og hef enn gaman af því að lesa og kynna mér allt sem viðkemur því.
Ég held að ég sé nokkurn veginn kominn með uppsetninguna en ég á auðvitað eftir að bæta mikið. Ef einhverjir hafa áhuga á að sjá síðuna er hægt að skoða hana hér. Ég nota TextWrangler til að vinna síðuna, sem er eins og Notepad++ fyrir makka. Ég hef nokkuð gaman af þessu og stefni á að halda áfram eftir að námskeiðinu lýkur.
Ég renni Validator í gegn eftir hverja breytingu til að sjá hvort uppsetningin samræmist ekki örugglega XHTML og CSS stöðlunum. Hingað til hefur það heppnast.